Lagalegar upplýsingar
Herbalife International gefur einungis dreifingaraðilum sínum aðgang að þessum viðskiptagögnum samkvæmt eftirfarandi skilmálum;
1. Einungis dreifingaraðilum í Bretlandi og Írlandi er heimilt að nota gögnin í þessum hluta og hvorki einstaklingar sem ekki eru dreifingaraðilar hjá Herbalife né einstaklingar í öðrum löndum mega nota þau.
2. Dreifingaraðilum er algerlega óheimilt að breyta efni þessara hjálpargagna á nokkurn hátt annan en að merkja sér þau í þar til gerðum reit fyrir upplýsingar um dreifingaraðila í hverri skrá. Upplýsingar í þessum skrám og hönnun þeirra lúta og njóta verndar alþjóðlegs höfundaréttar og eru í einkaeign Herbalife International. Hvorki má selja þær né endurnota til nokkurs annars en þær eru ætlaðar til.
3. Öll notkun dreifingaraðila á þessari síðu og innihaldi hennar verður að vera í samræmi við þær reglur sem gilda hverju sinni og birtar eru í 3. hluta handbókarinnar um alþjóðlega viðskiptatækifærið
4. Þó að við vonum að notendur hafi áhuga á að hagnýta sér þessa vefsíðu tökum við hvorki á okkur neina bótaskyldu né veitum nokkra ábyrgð, skilyrði eða aðra skilmála (yfirlýsta eða óyfirlýsta) í tengslum við hana og innihald hennar, að svo miklu leyti sem frekast er unnt að undanskilja sig frá slíkri bótaskyldu samkvæmt lögum. [Öll bótaskylda hvílir á herðum þess dreifingaraðila sem hlut á að máli enda stundar sérhver þeirra rekstur í eigin nafni og ekki fyrir eða í nafni Herbalife.]5. Ég hef lesið og samþykki að nota þessi gögn í samræmi við stefnu Herbalife um birtingu auglýsinga og hegðunarreglur og dreifingarstefnu sem kveðið er á um í handbókinni um alþjóðlega viðskiptatækifærið – smelltu hér til að fá ítarlegar upplýsingar
Herbalife (U.K.) Limited, Senator Court, Belmont Rd, Uxbridge, England, UB8 1HB.
|